7.1.2009 | 16:53
Gullkorn
Litli prins kemur oft með skemmtileg gullkorn og eitt þeirra kom í gær.
Við vorum að fara í gengum nokkra poka af ungbarnafötum til að lána systir minni. Litli prins var mjög áhugasamur um þessi föt og spurði hver ætti þau, ég auðvitað sagði honum að þetta væru föt síðan hann hefði verið lítill og nú ætluðum við að lána Bryndísi þau. Hann spáði í smá stund og sagði svo: " já og svo fáum við þau aftur fyrir okkar litla barn". Ég saðgi honum að það væri ekki að fara að koma lítið barn hjá okkur, þá horfði hann á mig með stóru brúnu augunum og sagði: " Jú þegar barnið kemur úr bumbunni hans pabba". Ég verð að viðurkenna að ég átti erfitt með að skella ekki upp úr en einhvernveginn hélt ég andliti og sagði honum að pabbar væru ekki með barn í maganum, svarið sem ég fékk var " jú pabbar eru víst stundum með barn í maganum og afar líka"
Flokkur: Vinir og fjölskylda | Facebook
Athugasemdir
Haha
kveðja María Huld
Rúnar og María, 7.1.2009 kl. 22:16
Æ, SÆTT ... þau eru svo yndislega hreinskilin .... :)
Katrín (IP-tala skráð) 8.1.2009 kl. 09:48
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.